Já það er komin tími á blogg!
Mikið er búið að vera að gera hjá mér seinnustu vikur og ekki hefur maður mikið getað sest niður fyrir framan tölvuna, en núna er er ég orðin lasin af allri þessari vinnu eflaust, og hef því tíma til þess að setjast niður.
Eg tók þá afdrífaríku ákvörðun um dagin að hætta vinnu minni í Borgarleikhúsinu, ekki frásögufærandi nema að þess vinna var að gera útaf við mig, af ýmsum ástæðum skal ég nú segja. Ég hef því fengið meirri vinnu í Hagkaup og vinn því þar eins og skepna frá morgni til kvölds, agalega skemmtilegt!
Eg kíkti norður á Húsavík um seinnustu helgi. Mikið agalega var gaman. Rúnar minn var svo elskulegur á föstudagskvöldinnu og kom mér þvílíkt á óvart, hann var búin að panta gistingu í Mývatnsveit með kampavínu og öllu tilheyrandi, mikið agalega var það rómantískt og mér leið eins og prinsessu. Hann er svo æðislegur.. thíhí:D Á laugardeginum kíktum við í smá könnunarferð um Mývantn, skoðuðum Gjána og þar komst minn elskulegi maður að því að ég væri nú meiri veimiltýtan því ég þorði ekki ofan í Gjána… *roðn* En hann gerði bara sæt grín af mér og við enduðum á að fara í baðlónið sem var mun þægilegra fyrir Möggu :S
Eftir að við komum til Húsavíkur aftur tók við alveg yndislegt kvöld, vinfólk Rúnars sem búset eru í Burmingham komu og elduðu mat fyrir okkur, sem og fleiri, að þeirra hætti. Hann er samt sem áður frá Pakistan en hún frá Indlandi. Þannig að þetta var nú skemmtileg blanda í eldhúsinu og mikið agalega var maturinn góður. Um kvöldið tók svo við helljarinnar djamm og skemmti ég mér alveg kónunglega:D
Sunnudagurinn fór nú aðalega í þynku hjá mér:S En við hörkuðum samt af okkur og rendum norður til Dalvíkur að hitta hana móður mína. Svo komum við við í bakaleiðinni og ég fékk að knúsa hann Brynjar minn og svo auðvitað hana Ástu mína líka:D
Annars er lítið annað að frétta nema vinna vinna vinna, alltaf vinna.
En ég held að ég æti að leggja mig.. komin tími á það, búin að vera að vakandi lengi þó svo að klukkkan se bara 10 að morgun.. get ekki sofið fyrir hósta og slími.. jakk
